Gönguferð
Ævintýralega göngu um stórbrotna íslenska náttúru þann 14. júní

Það er fátt betra en að reima á sig gönguskóna, skella góðu nesti í bakpoka og skunda af stað í góðum félagsskap. Sérstaklega ef það er upp um fjöll og firnindi um íslenska náttúru.
Því ætlum við að skella í eina góða göngu þann 14. Júní þar sem við munum ganga frá Grundarfirði (Grundará) og yfir í Lýsuhólslaug. Við verðum með fararstjóra sem hefur áralanga reynslu af hálendisgöngu og jöklagöngu ásamt því að vera þaul vanur björgunarsveitarmaður.
Mæting er á bílastæðinu við Grundará klukkan 9:30 og hefst gangan á að gengið verður upp að Grundarfossi og þaðan verður gengið inn Hróksdal og um Lýsuskarð.
Æskilegt er að þátttakendur séu vanir gönguferðum og útivist. Gengið er í fjölbreyttu landslagi, en á köflum er gengið í hrjóstrugu landslagi sem er þungt undir fótinn, og mikilvægt að vera í góðum skóm með ökklastuðningi. Búast má við 12-14 kílómetra göngu með 7-800 metra hækkun og að gangan taki 6-8 klukkustundir. Erfiðasti hluti göngunnar er í lokinn.
Ekkert símasamband er á hluta leiðarinnar.
Göngufólk þarf að hafa með vind- og vatnsheldan fatnað og nesti í bakpokanum. Nóg er af drykkjarvatni allan fyrri hluta göngunnar.
Ef veðurspáin bregst er sunnudagurinn 15. júní göngudagur til vara.
Fararstjóri er Guðmundur Rúnar Svansson.
Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband.
Practical Information
Price
11.800 á manninn
Departure Location
Bílastæðinu við Grundará
Duration
6-8 klukkustundir
Inclusions
Innifalið í verðinu er fararsjóri alla ferðina, aðgangseyrir í laugina og grillaðar pylsur og meðlæti í göngulok ásamt akstri frá Lísuhól til Grundarfjarðar
Good to know
Æskilegt er að þátttakendur séu vanir gönguferðum og útivist. Gengið er í fjölbreyttu landslagi, en á köflum er gengið í hrjóstrugu landslagi sem er þungt undir fótinn, og mikilvægt að vera í góðum skóm með ökklastuðningi. Búast má við 12-14 kílómetra göngu með 7-800 metra hækkun og að gangan taki 6-8 klukkustundir. Erfiðasti hluti göngunnar er í lokinn.
Cancellation policy
Cancellation fee of 5% is charged if cancelled anytime after booking, to cover our transaction fees. Cancellation fee of 100% is charged if cancelled 1 day or less before the event. In case of no-port, we will provide a full refund.
We require a minimum of 10 participants to proceed with the tour. Should this threshold not be met, the tour may be subject to cancellation.
Please note that the tour itinerary is subject to change without prior notice due to factors such as changes in the ship’s departure schedule, adverse weather conditions, or road conditions.